Pages

Sunday, March 14, 2021

Sængurkvennagrátur: Mér hefur aldrei liðið jafn illa á ævinni

Hera fæddist 17.september 2020 eftir 63 tíma fæðingu. Tæplega 3 dagar af hríðum. Þetta var byrjunin á mjög löngu og ströngu ferli sem ég er ennþá að kljást við núna.

Áður en ég átti hana vissi ég að fyrstu vikurnar eftir fæðingu yrðu erfiðar, svefnlausar og ég gæti upplifað sængurkvennagrátur og jafnvel fæðingarþunglyndi. Ég einbeitti mér mun meira að því að undirbúa mig fyrir líkamlega heilsu eftir fæðingu. Líkamleg heilsa mín eftir fæðinguna var frábær, af mínu mati. Allavega féll hún algjörlega í skugga af andlegri vanlíðan.

Frá því að ég fékk hana í fangið vissi ég strax að það væri eitthvað að hjá mér. Ég vissi strax að ég væri ekki að upplifa þessa alsælu ástartilfinningu sem foreldrar lýsa þegar þau fá barnið sitt í hendurnar. Ég fann léttir að þetta væri búið og eins og ég hefði fengið bikar í hendurnar. Hún fæddist og byrjaði strax að gera hljóðin sín, hljóðin sem yrðu eins og þyrnir í taugaendum mínum næstu vikurnar. Eðlileg nýburahljóð, ef þið vissuð það ekki þá er sjaldan þögn í kringum nýbura. Nýburar stynja mikið, allskonar rembingshljóð og bras í gangi. Þau byrja að gera þessi hljóð í leginu, fullkomlega eðlileg hljóð og mismikil barna á milli.

Ég var örmagna eftir fæðinguna, enda varla búin að sofa í 3 daga. Ég fékk ljósmæðurnar til þess að taka hana í nokkra tíma svo ég gæti sofið smá. Fullkomlega eðlilegt en mér fannst þetta vera mín fyrstu mistök sem móðir.

Fyrstu 2-3 vikurnar eftir fæðinguna voru pynting. Mér hefur aldrei liðið jafn illa og þá. Ég hafði enga tengingu við hana, ég gat varla horft á hana. Mér fannst þægilegast að horfa á hana í gegnum myndavélina á símanum mínum. Hún var og er krefjandi barn, ég var með hana í fanginu allan sólarhringinn nánast. Ég svaf ekki fyrstu 1,5 vikuna. Þetta eru engar ýkjur, max 10 mín í senn kannski 1-2x yfir sólarhringinn. Hluti af þessu var ekki það að hún var krefjandi, heldur bara þessi ýktu taugaviðbrögð sem ég upplifði. Ég gat ekki farið úr herberginu sem hún var í, hún þurfti að koma með mér allt. Ég var ekki með tilfinningalega tengingu, heldur líkamlega. Eins og segull.

Viðvarandi neyð var tilfinningin sem ég fann, eins og byssu væri miðað að mér allan sólarhringinn. Hvert einasta litla hljóð sem hún gerði var þess valdandi að ég fékk náladofa í allan líkamann nema 1000x verra. Lífið var tilgangslaust, ég kallaði yfir mig og makan minn helvíti á jörðu. Ég þráði að verða mamma, hvernig gat ég verði svona heimsk.

Ég borðaði ekki, léttist miklu meira en ég hefði átt að gera á þessum 2-3 vikum. Mér bauð við öllum mat.

Ég grét allan sólarhringinn, yfir því að líða svona, yfir því að langa að fara frá þeim, yfir því að hún væri svona krefjandi, yfir því að ég væri svona hræðileg móðir, undan þessari gríðarlegu ábyrgð og sektarkennd. Kvöldin voru verst af því þá var nóttina að koma, ég sat iðulega við kvöldmatarborðið og grét meðan ég reyndi að pína í mig mat.

Ljósmóðirin mín vissi af einhverju leiti hvernig mér liði. Ég þorði ekki að segja henni hversu hræðilegt þetta væri í raun og veru. Hún sendi beiðni á sálfræðing fyrir mig en það var biðlisti. Ég endaði á bráðamóttöku geðsviðs þegar Hera var 1,5 vikna eftir að hafa fengið það sem ég myndi lýsa sem taugaáfalli. Líkaminn minn hristist, ég var farin að bakka inn í svarthol sem mér fannst mjög raunverulegt. Ég hugsaði að ef ég væri dýr þá myndi bóndinn sem ætti mig skjóta mig til þess að linna kvalirnar. Ég grét allan tímann, frá því við ákváðum að ég myndi fara á geðdeildina og þar til ég kom heim. Hluti af mér vonaðist eftir því að ég yrði lögð inn, að þau myndi svæfa mig og taka Heru af mér. Ég mætti gríðarlegum skilning og hlýju þarna,  fékk kvíða og  svefnlyf og fór heim. Það var ofboðslega erfitt fyrir mig að samþykkja það að taka lyf því mér fannst ég vera að eitra fyrir dóttur minni. Það væri aldeilis toppurinn á því að vera slæm móðir, ég tengdist ekki barninu mínu og ég var byrjuð að eitra fyrir henni í þokkabót með þessum lyfjum.

Þegar ég náði að sofa aðeins þá fóru hlutirnir að lagast örlítið. Svefn var samt sjaldan og lítið í einu, sem er eðlilegt með nýbura. Líðan mín fór mjög hægt batnandi en samt kom vanlíðan í bylgjum. Ég er ennþá ekki orðin góð og efast um að ég muni einhverntímann verða eins og ég var, lífið verður aldrei eins aftur.

Tengslin við dóttur mína mynduðust ekki fyrr en hún varð 4 mánaða. Þetta eru engar ýkjur, ég hugsaði bara um hana fram að þeim tímapunkti af því ég átti að gera það.

Maður hugsar kannski, það er alveg hægt að lifa af 2-3 vikur af lamandi vanlíðan. Já, það er hægt. Ég gerði það. En ég verð aldrei söm eftir það. Að vita að þessar tilfinningar eru til finnst mér hræðileg tilhugsun. Heilinn minn gerði mér þetta, af vissu leiti held ég að ég muni alltaf lifa við einhverskonar áfallastreituröskun eftir þetta. Án þess að ég hafi verið greind með það.

Ég fékk greininguna fæðingarþunglyndi og kvíða. Síðan Hera var 3ja vikna hef ég verið að hitta fagfólk, fyrst miðstöð foreldra og barna og því næst sálfræðing á heilsugæslu.

Mig langar ekkert sérstaklega að deilda þessari upplifun á veraldrarvefnum, þetta er viðkvæmt og svo ný búið að gerast. Eina ástæðan fyrir því að ég skrifa þessa færslu er fyrir þig sem hefur þurft að upplifað þetta, munt upplifa þetta eða ert í storminum af þessu núna. Þá vil ég að þú vitir að þetta verður betra en þú verður að leita þér hjálpar. Þér mun einhverntíman líða betur. Ef þú upplifir ekki tengingu við barnið þitt þá er eitt víst, hún mun koma. Það er það sem var alltaf sagt við mig, ég var ekki alltaf viss um að ég vildi tenginguna. Ég var ekki viss um að ég væri nógu sterk til að þola hana. En hún gerði allt betra, ekki mikið betra. Bara betra.

Ef þú ert í þessu núna þá máttu hafa samband við mig, ég vil hjálpa þér ef ég get það.

sararagnheidur@gmail.com

Ekki hika við að senda á mig.

Ef þú ert í þessum sporum núna og þú þarft hjálp núna þá mæli ég með að þú leitir á þína heilsugæslu eða bráðamóttöku geðsviðs.

Þakkir.

Þetta tímabil er að líða hjá. Ég er svo þakklát fyrir fólkið í kringum mig sem vissi af þessu. Ég hringdi oft á dag í mömmu mína og bara grét. Maðurinn minn, sem er og var í fullum skóla á þessu tímabili, gerði sitt allra besta til að stappa í mig stálinu. Ég sagði oft við hann að ég hefði átt að vera pabbi en ekki mamma, ég sé núna að það er ekki endilega auðveldara að vera pabbi þegar mamman er í molum. Hann bar okkur báðar á þessu tímabili og er ég ævinlega þakklát að hafa valið hann til undaneldis.

Sérstakar þakkir fá Hermína ljósmóðir og Kormákur sálfræðingur. Ég vil ekki vita hvar ég væri án þeirra.

Síðast en ekki síst vil ég þakka Heru minni, fyrir að vera duglegasta og þrjóskasta barn sögunnar.  

Tuesday, November 7, 2017

Krabbamein í eggjastokkum

FALDA MEINIÐ


Þetta snertir mig sérstaklega af því að ég er BRCA2 Arfberi. Sem þýðir að ég er í meiri hættu á að greinast með krabbamein í kvenlíffærum. 
Oftast, ekki alltaf, finnst mér ég vera heppin að vita af þessum erfðafræðilega þætti hjá sjálfri mér. Vegna þess að ég fer í reglubundið eftirlit á brjóstum og eggjastokkum. Árleg segulómun, árlegt mammogram ásamt ómskoðun á brjóstum og svo heimsókn til kvennsjúkdómalæknis árlega þar sem ég fer líka í blóðprufu. 

Eftirlitið hjá kvensjúkdómalækni er það sem ég er ánægðust með, við erum fáar spenntar fyrir því að fara til kvennsjúkdómalæknis og því er hætta á því að við förum of sjaldan.


Krabbamein í eggjastokkum er yfirleitt einkennalaust á byrjunarstigum sjúkdómsins. Eggjastokkarnir eru lítil líffæri sem hafa pláss í kringum sig til þess að stækka án þess að þrýsta á önnur líffæri.
Vegna þess að æxlið er lengi einkennalaust þá hefur það fengið tíma til þess að vaxa og dreifa sér í önnur líffæri, sjúkdómurinn er því oft orðinn langt genginn við greiningu.


Helstu einkenni:

Kviðverkir

Þyngdartilfinning í kviðarholi

Þaninn kviður

Tíð þvaglát

Óreglulegar hægðir

Ógleði

Óeðlilegt þyngdartap


Óreglulegar blæðingar geta verið einkenni af krabbameini í eggjastokkum en það er sjaldgæfara. Þessi einkenni eiga ekki endilega beina tengingu við kvenlíffærin í huga okkar flestra. 

Um það bil 15 konur á ári hverju greinast með þennan sjúkdóm og meðalaldur við greiningu er 65 ára. Það er sjaldgæfara að konur greinist undir 50 ára en það getur gerst. Aðeins 55% kvenna eru lifandi fimm árum eftir greiningu. 

Konur fara yfirleitt fyrst í skurðaðgerð og seinna í lyfjameðferð.
Sjúkdómurinn tekur sig upp aftur í 70-95% tilvika hjá þeim konum sem eru með langt genginn sjúkdóm við greiningu. En þær konur sem greinast með sjúkdóm á byrjunarstigi eru bara í 10% áhættu á að sjúkdómurinn taki sig upp aftur.

Þetta gefur að skilja að það er mjög mikilvægt að ná sjúkdómnum snemma!
En aðeins EIN af hverjum FJÓRUM kvenna greinast með sjúkdóminn á byrjunarstigum. 

Við konur þurfum að fylgjast með þessum einkennum og leita til kvensjúkdómalæknis ef einkennin láta á sér bera!

Skimun fyrir þessum sjúkdóm er ekki talin geta borið árangur, það er ekki til nógu skilvirk leið til þess ennþá. Samanborið við skimun vegna leghálskrabbameins þar sem hægt er að taka sýni. 
Hægt er að mæla ákveðinn æxlisvísi, Ca-125, sem getur verið hækkað við krabbamein í eggjastokkum. Æxlisvísirinn er mældur með blóðprufu, mælingin getur verið óeðlileg af öðrum ástæðum heldur en vegna krabbameins í eggjastokkum og er því ekki fullnægjandi skimun.
Vegna þess að ég er í áhættu á að fá þetta krabbamein þá er Ca-125 mælt hjá mér árlega og ef það er hækkað yrði það þá skoðað nánar.

Ég vona innilega að þetta geti verið vitundarvakning fyrir ykkur allar, vera meðvitaðar um þessi einkenni og jafnvel kíkja til kvensjúkdómalæknis í skoðun og láta taka strok úr leghálsi í leiðinni!



Hægt er að lesa meira um þennan sjúkdóm á vef krabbameinsskráar, hér.

Ef þú vilt læra meira um BRCA stökkbreytingarnar þá er það hægt hér.

HEIMILDIR

https://ocrfa.org/patients/about-ovarian-cancer/recurrence/

http://www.krabbameinsskra.is/resources/pdf/krabbamein/krabbamein_a_islandi_2012-krabbamein_i_eggjastokkum.pdf

http://www.brjostakrabbamein.is/minnkadu-likurnar/krabbamein/munnmaeli-stadreyndir/